Skip to main content

Berlín

Leikur að læra býður upp á endurmenntunarferðir til þessarar sögufrægu borgar í Þýskalandi. Sagan lifnar við í hverju skrefi auk þess sem borgin iðar af mannlífi, veitingastöðum og verslun. Við erum í frábæru samstarfi við skóla í Berrlín svo kennarar og annað starfsfólk skóla fá mikið út úr því að sækja borgina heim og kynnast þýsku skólakerfi.
Berlín er ein vinsælasta borg Evrópu og í endurmenntunarferð þangað getur þú einnig notið þeirrar miklu menningar og sögu sem borgin býr yfir og fengið eins mikið út úr ferðinni og möguleiki er á.

Einkenni Berlínar

Sjónvarpsturninn í Berlín er líklega mest áberandi einkenni borgarinnar enda ein hæsta bygging Evrópu. Á hverjum degi fara fjölmargir upp í turninn og virða fyrir sér borgina úr besta mögulega útsýni.
Berlín er sérstaklega þekkt fyrir sín fjölmörgu söfn og í þeim er auðvelt að gleyma stað og stund og falla fyrir leyndardómum þeirra. Gyðingasafnið, Judesches Museum, er eitt vinsælasta safn Berlínar en þar má fræðast um sögu gyðinga í Þýskalandi. Neues safnið, Altes safnið og Pergamon safnið eru öll á mynjaskrá Unesco og á þeim ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Á DDR safninu er hægt að sjá hvernig líf fólks var austan Berlínarmúrsins. Það er þó ekki nauðsynlegt að fara á safn til að sjá andstæðurnar sem voru þegar múrinn stóð, enda eru þær mjög miklar hvað byggingar borgarinnar varðar. Einn besti staðurinn til að upplifa þessar andstæður er Checkpoint Charlie.

Torg Berlínar eru fjölmörg og mismunandi eftir því. Pariser Platz er eitt það þekktasta en við það stendur hið heimsfræga Brandenburgarhlið. Potsdamer Platz er einnig mjög áhugavert og ekki síst vegna þess að ekki er langt síðan að það var lítið annað en sandur.
Dómkirkjan í Berlín er ótrúleg bygging og hana er kjörið að skoða, stuttar raðir og margt að sjá. Kálfarnir hvílast ekki þegar Dómkirkjan er skoðuð því að til að njóta hennar sem allra best þarf að ganga fjölmargar tröppur.

Verslun

Í Berlín er hægt að finna fjölmargar verslanir sem Íslendingar hafa gaman að. Verslunarferð í H&M er algengur dagskrárliður í utanlandsferðum og haldið ykkur fast, það eru 28 slíkar verslanir í Berlín! Zara, Primark og C&A eru dæmi um verslanir sem eru í Berlín en þær eru í raun endalaust margar. Glæsilegar verslunarmiðstöðvar eru um alla borg og má þar nefna Alexa Mall og Kadawe.
Fyrir þau sem hafa gaman af verslunargötum er kjörið að fara á Kurfürstendamm, Friedrichstraße, Hackescher Höfe og Hackershermarkt, svo dæmi séu tekin, en á þar er verðlagt oft lægra en í verslunarmiðstöðvum.

Afþreying

Möguleikar á afþreyingu eru endalausir í Berlín enda borgin ein mesta menningarborg heims. Við hjá Leikur að læra erum í samstarfi við Berlínur (www.berlinur.de) og er ein skoðunarferð með þeim innifalin í okkar ferðum til Berlínar. Um er að ræða Múrtúrinn en í honum er farið yfir stórbrotna sögu aðskilnaðar Berlínar í austur- og vesturhluta á árunum 1961-1989. Berlínur hafa kafað djúpt í söguna og fengið flótta- og reynslusögur frá vinum og vandamönnum og einkennist leiðsögn þeirra því af raunverulegum aðstæðum og natni fyrir viðfangsefninu.
Heimsfrægir tónlistarmenn halda tónleika reglulega í Berlín og er kjörið að athuga hvort einhver sem er í uppáhaldi hjá þér sé með tónleika á meðan á dvöl þinni stendur. Á til dæmis http://www.eventim.de eru auglýstir tónleikar sem gætu heillað þig.

Ferðalagið

Flogið er með WOW Air í beinu flugi Berlínar. Flogið er á hverjum degi kl. 06.10 og lent kl. 10:45. Flogið er heim aftur kl. 11.35 og lent í Keflavík um 14.20. Í ferðum okkar er rúta til og frá hóteli á flugvöllinn innifalin.

Skólaheimsóknir

Leikur að læra er í frábæru samstarfi við þó nokkra skóla í Berlín og voru þeir valdir til að endurspegla þýskt menntakerfi á sem besta hátt og með það að leiðarljósi að kennarar og annað skólastarfsfólk fengi sem mest út úr heimsóknunum. Þýska skólakerfið er mjög áhugavert og er margt í því sem okkur finnst bæði framandi og spennandi. Hópar sem ferðast með okkur geta komið með óskir um hvað þeir vilja sjá og til að uppfylla ykkar þarfir finnum við rétta skólann handa ykkur. Í allar skólaheimsóknir eru rútur innifaldar til og frá hóteli og er túlkur með í för svo enginn ætti að verða í vandræðum með að meðtaka kynningar skólanna og ættu því allir að geta notið heimsóknanna eins og best verður á kosið.

Umsjón persónuverndarvalkosta

Afar Nauð

Vafrakökur eru nauðsynlegar til að vefsetrið starfi eðlilega.

-

Synleg Frammistöðu

Vafrakökurnar eru notaðar til að fylgjast með notendasamskiptum og skynja þegar hugsanleg vandkvæði koma upp. Þær hjálpa okkur að bæta þjónustu okkar með því að láta í té greiningargögn um hvernig notendur nota þetta vefsetur.

_ga, _gali, _gat, _gid

Markaðssetning

Notaðu vafrakökur til að nýta þér markaðssetningarreynslu þína til hins ýtrasta og lesa veraldarvefinn. Allar fyrirætlanir eru að mestu leyti viðeigandi fyrir hvern einstakling og eru jafnframt viðeigandi valkostir fyrir hvern ritstjóra vefseturs og aðra.

_